Við stöndum
saman.
Eins og einhverjir vita nú þegar greindist Heiðar með bráðahvítblæði á dögunum. Það er mikið áfall, sérstaklega í ljósi þess að það eru fjórir mánuðir síðan við eignuðumst Gunnar Darra okkar.
Það er stórt verkefni framundan en við erum staðráðin í að sigrast á þessu saman, litla fjölskyldan, og foreldrar okkar beggja sem eru eins og klettar. Meðferðin er þegar hafin og stendur Heiðar sig gríðarlega vel og er líðan hans eftir aðstæðum.
Við þökkum kærlega fyrir allar kveðjurnar sem okkur hafa borist, þær eru ómetanlegar. Ljósið í myrkrinu sem er yfir núna er litli sólargeislinn okkar, hann heldur okkur við efnið🤍




